Microsoft SharePoint
Einfalt viðmót
Högun SharePoint er einföld og þægileg, jafnvel fyriæalskdjfæ æasldkfj alskdjfaæsldkfjæalskdfjr þá sem hafa aldrei notað kerfið og búa ekki yfir tæknilegri þekkingu. Að breyta uppsetningu, hönnun og hversu nákvæmar upplýsingar birtast á síðunni er afskaplega einfalt og þægilegt.Frábær vefgátt
Til að tryggja öflugt flæði upplýsinga innan fyrirtækisins, ætti innri vefur í SharePoint að vera fyrsti snertiflötur allra starfsmanna þegar þeir opna tölvukerfin á morgnana, óháð því hvaða hlutverki þeir gegna í fyrirtækinu. SharePoint gáttin gerir það að verkum að auðvelt er að sérsníða vefi og vefsíður fyrir starfsmenn, hópa og deildir, allt eftir þörfum hvers og eins. Stakar vefsíður eins og blogg síður, Wiki síður og aðrir vefsíður eru settar upp með afar einföldum hætti. Sömuleiðis er hægt að setja upp extranetsvefi með innskráningar möguleika fyrir viðskiptavini sem og ytri vefi.
Microsoft SharePoint (vefsíða)
Nánari upplýsingar
Hafðu samband við sérfræðinga Skýrr í Microsoft samskiptalausnumNetfang: sharepoint@skyrr.is
Sími: 569 5100
SharePoint er öflug samskiptagátt. Allar upplýsingar fyrirtækisins eru geymdar á einum stað og starfsmenn geta nálgast allar þær upplýsingar sem þeir hafa aðgang að, auk þess sem í SharePoint er hægt að setja upp fjölbreytta ferla vegna samþykkta, umsókna og annarrar upplýsingamiðlunar. Hægt er að setja upp hópavinnusíður og stýra þekkingarstjórnun með góðum árangri í SharePoint.
Með auðveldum hætti er hægt að birta fjölbreyttar fjárhagslegar upplýsingar upp úr skjölum og kerfum með SharePoint sem og að tengjast öðrum kerfum í gegnum vefþjónustur. Hægt er að fá allar lykiltölur og mikilvægar fjárhagslegar upplýsingar birtar á síðunum sem eykur viðskiptagreind starfsmanna til muna og gerir alla ákvarðanatöku markvissari.
Öflug leit og gott skjalakerfi
SharePoint býður upp á víðtæka leit í öllum skjölum og hægt er að stilla leitina þannig að hún leiti í skjalasöfnum, á drifum og öllum upplýsingabrunnum fyrirtækisins. SharePoint er fullkomið skjalakerfi sem uppfyllir allar þær kröfur sem nútíma skjalakerfi þarf að uppfylla. Leitin er mjög öflug í Sharepoint og hægt að stilla hana þannig að leitað er í eldri gögnum sem liggja á netdrifum sem og á sjálfum SharePoint servernum. SharePoint heldur líka utan um breytingasögu skjala, útgáfustýringar og lýsigögn skjala.
Skýrr SP Grunnkerfi
Microsoft SharePoint Grunnkerfi Skýrr er hentug lausn fyrir þá vinnustaði sem vantar innranet eða hópvinnusvæði.
Með Grunnkerfinu er hægt að birta myndir, dagatal, setja upp hópavinnusvæði eða bloggsíður í þægilegu viðmóti sem margir þekkja úr Microsoft Office. Í Grunnkerfinu eru einingarnar uppsettar og stilltar eftir þörfum þinnar starfsemi og sömuleiðis hægt að bæta við viðbótareiningum sé þess þörf. 
Sérfræðingar Skýrr hafa auk þess sérsmíðað fjölda tenginga og vefhluta í SharePoint sem má bæta við Grunnkerfið.
Ráðgjafar Skýrr hafa miklu reynslu af uppsetningu og stillingu vefhluta í SharePoint og geta því fljótt og örugglega sett upp Grunnkerfið fyrir viðskiptavini sína.
Uppsetning og stilling á eftirtöldum einingum eru hluti af Grunnkerfinu:
- Aðgangsstýringar
- Myndasafn
- Glærusafn
- Hópvinnusíður
- Dagatal
- Blogg
- Kannanir
- RSS Feed
- Leit
- Tilkynningar
- Undirlagið
Kerfið byggir á Microsoft Services WSS 3.0 sem krefst þess að notandinn sé með Windows Server 2003 eða nýrri útgáfu og því þarf ekki SharePoint Server leyfi eða Microsoft SQL til að hægt sé að nota lausnina. Þeir sem eiga Microsoft Sharepoint Server hugbúnað geta líka nýtt sér Grunnkerfið með Microsoft SQL server og nýtt sér þá viðbót sem sú útgáfa bíður upp á.
SharePoint Skjölun er sérlausn frá Skýrr og byggir á reynslu við uppbyggingu skjalakerfa í SharePoint umhverfi í þægilegu vefviðmóti. Lausnin eykur hagræði við flokkun skjala, að ná yfirsýn yfir allar tegundir skjala og styður við skjalastefnu viðskiptavinarins.
Lausnin hentar smærri og stærri fyrirtækjum og stofnunum, er afar notendavæn og auðveld í uppsetningu og viðhaldi.
Í Skjölun má m.a. finna eftirfarandi möguleika:
- Öflugar aðgangsstýringar á möppur, skrár og einstök skjöl
- Auðvelt að setja lýsigögn á skjöl og hægt að láta lýsigögn af möppu erfast niður á skjöl
- Innbyggðir verkferlar, til dæmis rýni- og samþykktarferlar
- Útgáfustýringar skjala
- Hægt að kvitta skjöl út (Check Out) á meðan unnið er í þeim og kvitta þau inn á ný (Check In)
- Tilfærsla skjala með „Drag and Drop“
- Auðvelt að setja eigin sýn á gögn, birta þau með möppum eða án og flokka á mismunandi hátt
- Mikið af þægilegum listum sem hægt er að vinna með í skjalasafninu
- Stillanleg leit sem gerir það að verkum að auðvelt er að finna skjöl
- Skjalavistun er möguleg á öllum þekktum skráarsniðum
- Hægt að senda skjöl í óvirka vistun og síðar í eyðingu samkvæmt skjalastefnu fyrirtækis

Undirlagið
Kerfið byggir á Microsoft Services WSS 3.0 sem krefst þess að notandinn sé með Windows Server 2003 eða nýrri útgáfu og því þarf ekki SharePoint Server leyfi eða Microsoft SQL til að hægt sé að nota lausnina. Þeir sem eiga Microsoft SharePoint Server hugbúnað geta líka nýtt sér SP Skjölun með Microsoft SQL Server og nýtt sér þá viðbót sem sú útgáfa bíður upp á.

