Microsoft Dynamics NAV
Alhliða viðskipta- og upplýsingakerfi með einföldu og hnitmiðuðu notendaviðmóti. Aðlögunarmöguleikar kerfisins eiga sér enga hliðstæðu og sveigjanleiki þess gerir kleift að laga kerfið að hvers konar viðskiptum.Þjónustusími Microsoft
Hafðu samband - 550 9090
Þjónustuvefur Microsoft Dynamics NAV
Velkomin - Smelltu hérNámskeið
Skýrrskólinn - Microsoft viðskiptalausnir
Frekari upplýsingar:
Skýrr hefur unnið markvisst að hugbúnaðarlausnum fyrir banka og aðrar fjármálastofnanir. Microsoft Dynamics NAV fjármálalausnirnar beinast að umsýslu og vörslu verðbréfa hjá verðbréfafyrirtækjum og stærri fjárfestum.
Skýrr býður upp á eftirfarandi fjármálalausnir:
- Afgreiðslukerfi og eignastýring verðbréfa
- Afgreiðslukerfi fyrir verðbréfafyrirtæki.
- Fjölmyntalán
- Greiðslur til banka
- Innheimtukerfi
- Kaupsamningar
- Lánakerfi
Navision lánakerfi auðveldar alla umsýslu með lánum hvort sem um er að ræða útlán eða innlán fyrirtækis. Kerfið vinnur með allar gerðir lánasamninga svo sem lán með óreglulegum gjalddögum og lán í erlendum myntum. Hægt er að flokka mismunandi lánasamninga í aðskildar lánageymslur og lánaflokka. Kerfið gefur síðan möguleika á að skoða uppreiknaða stöðu, vanskil og greiddar afborganir eftir þessum flokkum. Notandi hefur möguleika á að tengja lánakerfið við fjárhagsbókhald og viðskiptamannabókhald.
- Sjálfvirkar bankaafstemmingar.
- Verðbréfamappa.
- Utanumhald með hlutabréfum.
- Núvirðisreikningur hluta- og skuldabréfa.
Microsoft Dynamics NAV - fyrir smærri fyrirtæki
Skýrr býður mjög einfalda og þægilega upplýsingatækni fyrir smærri fyrirtæki. Í boði er fullkomið Microsoft Dynamics NAV til leigu. Enginn uppsetningarkostnaður, fyrstu 30 dagarnir fríir og engar færslutakmarkanir. Kerfið er hýst miðlægt í öruggu umhverfi hjá Skýrr, stærsta hýsingaraðila Microsoft Dynamics hugbúnaðar á Íslandi.
Hvað er í pakkanum?
Um er að ræða leigu, rekstur og vörslu á stöðluðum Microsoft Dynamics NAV hugbúnaði. Hugbúnaðurinn kemur með uppsettu einu fyrirtæki með stöðluðum bókhaldslykli og grunnuppsetningu.- Fjárhagsbókhald
- Eignakerfi
- Viðskiptamanna- og sölubókhald
- Lánardrottna- og innkaupakerfi
- Birgðir
- Forðabókhald – grunnur
- CRM tengslastjórnun – grunnur
- Starfsmannahald – grunnur
- Ótakmarkaður fjöldi fyrirtækja (með sömu eignaraðild)
Microsoft Dynamics NAV
Eftirfarandi sérkerfi Skýrr eru í boði til viðbótar við stöðluðum hugbúnaði Microsoft Dynamics NAV. Um er að ræða fast mánaðargjald og fría uppsetningu:
- Laun
- Tímaskráning
- Launamiðar verktaka
- Innheimta
- Uppflettiveita (gengi, vísitölur o.fl.)
- Sjálfvirkar bankaafstemmingar
- POS verslunarkassi
- POS tenging við NAV
- Kostnaður þekktur
- Enginn uppsetningarkostnaður
- Auðvelt að skala til notendafjölda
- Fyrsti mánuðurinn frír í notkun
- Engin uppfærslugjöld
- Þjónustuvefur með leiðbeiningum

