Microsoft Dynamics CRM

Fyrirtæki geta bætt árangur í rekstri með því að stýra markvisst samskiptum, verkefnum og tengslum við viðskiptamenn, einkum hvað snertir þjónustu, markaðsmál, sölu og fjárhag. Aðferðafræðin bak við þessa högun nefnist Customer Relationship Management (CRM). Ein öflugasta CRM-lausnin á markaði er Microsoft Dynamics CRM 4.0.

Stjórnun viðskiptatengsla með CRM

Núverandi aðstæður í efnahagslífinu gera það að verkum að sjaldan eða aldrei hefur verið jafn mikilvægt að styrkja tengsl við núverandi viðskiptavini. Á sama tíma er nauðsynlegt að efla samskipti við atvinnulífið til að skapa ný tækifæri.

Microsoft Dynamics CRM er alhliða samskiptalausn sem er einföld í notkun og er samhæfð öðrum hugbúnaði frá Microsoft, svo sem Outlook, Excel og Word. Með lausninni getur starfsfólk haldið utan um öll samskipti við viðskiptavini á skipulagðan og aðgengilegan hátt, til dæmis tölvupóst, símtöl, markaðsefni, fundi, verkefni og sölutækifæri.

Nánari upplýsingar

Hafðu samband við sérfræðinga Skýrr í Microsoft samskiptalausnum
Netfang: skyrr@skyrr.is
Sími: 569 5100

Eftirfarandi er í boði:

  • Innleiðing Microsoft Dynamics CRM 4.0
  • Uppfærsla úr CRM 3.0 í 4.0
  • Viðurkenndir og vottaðir innleiðingarferlar
  • Birting fjárhagsgagna í CRM-umhverfinu með Microsoft Business Intelligence
  • Samþætting CRM við SharePoint og NAV
  • Samþætting CRM við önnur kerfi utan Microsoft Dynamics
  • Sérlausnir fyrir Outlook
  • Reynslumiklir og öflugir ráðgjafar
  • Þjónustuborð opið allan sólarhringinn
  • Hýsing og afritun í öruggu umhverfi

Innleiðing

Starfsmenn Skýrr vinna samkvæmt vottuðum og viðkenndum innleiðingarferlum á Microsoft Dynamics CRM. Stuðst er við Sure Step-innleiðingarferil frá Microsoft sem hægt er að aðlaga ýmist smáum eða umfangsmiklum innleiðingum. Að fá ráðgjafa frá Skýrr til að stýra innleiðingu á Microsoft Dynamics CRM er góður kostur til að tryggja árangursríka innleiðingu og arðsemi fjárfestingarinnar. Ráðgjafar Skýrr eru með góða reynslu af innleiðingu á Microsoft Dynamics CRM og eru sérhæfðir í aðlögun kerfisins og tengingum CRM við önnur kerfi.

Samþætting

Fyrirtæki hafa á undanförnum árum í síauknu mæli áttað sig á mikilvægi þess að nálgast gögn á skjótan og öruggan hátt í einföldu viðmóti sem er aðgengilegt flestum eða öllum starfsmönnum. Microsoft Dynamics CRM sameinar fjölda upplýsinga í einu kerfi en býður einnig upp á einstaka samþættingarmöguleika við önnur kerfi. Sérfræðingar Skýrr hafa áralanga reynslu af samþættingu UT-kerfa og hafa hámarkað afköst og notagildi CRM-kerfisins með tenginu við öll helstu viðskiptakerfin.

Öflugt hjálpartæki

Microsoft Dynamics CRM tryggir samræmda skráningu upplýsinga og auðveldar aðgengi að viðskiptasögu eins og t.d. tilboðum, pöntunum, verkefnum og skjölum. Með miðlægri skráningu tengiliða nýtist kerfið á öflugan hátt við stýringu markaðsherferða og söluaðgerða. Kerfið er afar sveigjanlegt og auðvelt í uppsetningu og með því fæst betri yfirsýn yfir verkefnastöðu og hærra þjónustustig. Auðveldara verður að greina vöru og þjónustu og koma auga á mikilvæg viðskiptamynstur og þróun.

Uppfærsla

Í byrjun árs 2008 kom út ný útgáfa af Microsoft Dynamics CRM (4.0). Skýrr hefur mikla reynslu af uppfærslu kerfisins og sérfræðingar fyrirtækisin vinna samkvæmt skilgreindu ferli hvað uppfærsluna varðar

Ítarefni

Microsoft Dynamics CRM (vefsíða)

Kynning