Bo Data Integrator

Öflugt ETL kerfi

Data Integrator (DI) er eitt öflugasta ETL (extract - transform - load) tólið á markaðnum í dag. DI les og skrifar nánast hvaða gagnagrunn sem er og býður upp á gríðarlegan lestrar- og skriftarhraða þar sem flestar aðgerðir eiga sér stað í vinnsluminni ETL aðgerðaþjónsins. Nauðsynlegt þar sem "lestrargluggar" gagnagrunnskerfa fara sífellt minnkandi

Samhliða lestur gagna (Parallel Processing)

Með samhliða lestri má sjálfvirkt dreifa einu verki (t.d. lestri gagnagrunns) yfir á marga verkþætti og margfalda þannig lestrarhraða.

Samhæfing við viðskiptakerfi

Data Integrator býður upp á afar öfluga samhæfingu við flest hinna þekktu ERP kerfa á markaðanum.

SAP samhæfing:

  • Di býr sjálfkrafa til ABAP fyrir Batch keyrslur
  • DI er samhæft við BAPI viðmót
  • DI er samhæft við Inbound og Outbounds IDocs
  • DI er vottað til að hlaða gögnum í SAP BW og skrifa í SAP R/3 grunna

 

Oracle OeBS samhæfing:

  • DI styður bæði rauntíma og batch samhæfingu
  • DI les Metadata úr Oracle grunnum
  • DI notar Oracle Open Interface og getur lesið Fiexfields
  • Rapid Marts - tilbúin vöruhús fáanleg fyrir flesta OeBS kerfishluta

 

Ýmiskonar legacy gögn

  • DI les, flytur og hreinsar gögn úr kerfum eins og IBM IMS/VS, IBM VSAM, IDMS og ADABAS í gegnum sama viðmót og notað er á móti almennum gagnagrunnum.