SAP Business Objects
Leiðandi á sviði viðskiptagreindar
Skýrr hefur selt lausnir frá Business Objects frá árinu 2000 og viðskiptavinir á Íslandi og í Færeyjum koma úr öllum greinum atvinnulífsins.Business Objects var stofnað árið 1990 og hefur allar götur síðan skilað eigendum sínum hagnaði. Fyrirtækið er leiðandi aðili á viðskiptagreindarmarkaði. Það er skráð á NASDAQ og EURONEXT, með yfir 30.000 ánægða viðskiptavini í yfir 80 löndum. Hjá fyrirtækinu vinna riflega 4.000 manns og það velti ríflega 1.000 milljónum dollara árið 2005.
Nánari upplýsingar
skyrr@skyrr.isSkilgreining
Viðskiptagreind er sú aðferðafræði sem beita má til að:- draga saman gögn á skipulegan hátt,
- greina þau með rafrænum hætti og
- dreifa fenginni þekkingu og unnum upplýsingum til stjórnenda og annarra starfsmanna fyrirtækisins.
Að breyta gögnum í verðmæti
Viðskiptagreind snýst um að breyta gögnum í verðmætar upplýsingar. Þessar upplýsingar nýtast svo sem grundvöllur ákvarðanatöku stjórnenda fyrirtækja eða annarra starfsmanna. Lausnir frá Business Objects mynda heildstætt umhverfi fyrir viðskiptagreind, allt frá samhæfingu gagna til áætlanagerðar og mælaborðs fyrir stjórnendur.
Lykill að betri ákvörðunum
Hver vill ekki geta formgert hugmyndir sínar, sett markmið fyrir starfsfólk og fylgst náið með lykiltölum rekstrar?
Business Objects býður lausnir sem gera notendum kleift skapa tengingar á milli markmiða og aðgerða á einfaldan og markvissan hátt. Stjórnendur geta fylgst með rekstrinum frá degi til dags gegnum myndræn mælaborð og borað sig niður í gögn, gerist þess þörf.
Helstu kerfishlutar
Helstu kerfishlutar eru:
-
Performance Manager - Margskonar lausnir fyrir árangursmat í rekstri (m.a Balanced Scorecard)
- Dashboard Manager - Mælaborð stjórnandans
BO Dashboard Manager - Mælaborð stjórnandans
Dashboard Manager (DM) er grunneining árangurstjórnunarverkfæra BO. Með DM getur stjórnandi byggt upp mælaborð þar sem fylgjast má með skilgreindum stærðum í rekstri fyrirtækisins. Mælingar má birta á myndrænan máta.
Með því að skilgreina hóp mælikvarða og birta þá í mælaborði er síðan hægt að setja upp ýmsar reglur um viðbrögð sem byggjast á hegðum viðkomandi mælikvarða.
Straumlínulöguð áætlanagerð
Business Objects býður upp á kerfiseiningu til þess að straumlínulaga áætlanagerð. Einingin er fullkomlega samhæfð öðrum kefiseiningum í viðskiptagreindarumhverfi Business Objects. Slíkt sparar tíma, fjármuni og fyrirhöfn, auk þess að brúa bilið milli hugmynda og veruleika.
Notendaumhverfi sem allir þekkja
Áætlanagerð í Business Objects er unnin í Microsoft Excel notendaviðmóti en bein tenging við sameiginleg gögn viðskipta-greindarumhverfisins tryggir hins vegar að alltaf er verið að vinna með sömu gögnin. Þar með sjá allir sama "sannleikann" og ekki myndast gagnaeyjur um allt fyrirtæki.
Helstu kerfiseiningar í Business Objects Áætlanagerð
Helstu kerfiseiningar eru:
- Business Objects Budgeting; til fjárhagsáætlanagerðar
- Business Objects Payroll Planning; til vinnslu launaáætlana
- Business Objects Sales Planning; til gerðar söluáætlana
Gagnvirkar fyrirspurnir og greiningar
Business Objects býður upp á mjög öflugar lausnir á sviði fyrirspurna og greininga sem gerir öllum notendum kleift að grafa dýpra ofan í upplýsingar á mjög notendavænan hátt.
Einfalt viðmót og sveigjanlegir möguleikar
Hægt er að gera fyrirspurnir í OLAP teninga, merkingarlag Business Objects eða beint niður í raungögn. Boðið er upp á veflægt notendaviðmót þar sem möguleikar til greininga er miklir og sveigjanlegir. Gagnaborun (e. Drill, slice, dice) eru hluti þeirra möguleika sem boðið er uppá og getur hentað mjög breiðum hópi notenda.
Miklir möguleikar til fyrirspurna og greininga
Business Objects býður upp á mikla og sveigjanlega möguleika til fyrirspurna og greininga. Skilyrði (e. promts) og álfar (e. wizards) geta leitt notandann áfram skref fyrir skref og notandinn getur sjálfur breytt skilyrðum. Notandinn notar alltaf sama verkfærið sem gerir honum kleift að framkvæma fyrirspurnir og greiningar á hnökralausan hátt.
Helstu kerfiseiningar
Helstu kerfiseiningarnar eru:
-
Web Intelligence - Veflægt verkfæri til að byggja upp gagnvirkar fyrirspurnir og greiningar
-
Destop Intelligence - Þykkur biðlari (e. thick client) til byggingar á gagnvirkum fyrirspurnum og greiningum
-
OLAP Intelligence - Verkfæri sem gerir notendum kleift að gera gagnvirkar fyrirspurnir og greiningar beint i OLAP teninga
-
Intelligent Questions - Gerir notendum kleift að spyrja spurninga með venjulegum hætti (aðeins til fyrir ensku).
Enterprise Information Management (EIM)
Góð og samhæfð gögn, undirstaða árangurs í viðskiptagreind

Samhæfing gagna er grundvallarforsenda þess að vel takist til þegar aðferðarfræði viðskiptagreindar er viðtekin í fyrirtækjum. Það er bæði gamall sannleikur og nýr að þær upplýsingar sem út úr kerfum koma, eru hvorki betri né verri en þau sem sett voru inn í kerfið. Því er mikilvægt að hafa þetta í huga allt frá byrjun.
Margvísleg og dreifð gögn
Þarfir fyrirtækja eru margsvíslegar þegar kemur að nýtingu upplýsinga. Í flestum tilfellum eru þó gögn dreifð og notast er við fleiri en einn gagnagrunn. Í EIM flórunni býður Business Objects verkfæri sem eru óháð gagnagrunnum og geta unnið með nánast hvaða gögn sem er, s.s. Excel skjöl, flatar textaskrár auk hinna ýmsu gagngrunnstegunda. Þá eru einnig fáanlegar kerfisviðbætur sem aðstoða við uppbyggingu flutningsferla á milli kerfa og jafnvel tilbúnir gagnamarkaðir fyrir ERP kerfi stærri framleiðenda s.s. Oracle og SAP.
Nýjungar í Enterprise Information Management flórunni
Business Objects hefur sent frá sér margar nýjungar í EIM flórunni á þessu ári:
- Data Integrator XI - Ný útgáfa, 11.6, af DI er væntanleg í lok sumars 2006
- Data Federator - Nýtt og öflugt verkfæri frá BO í EII deildinni.
- Data Cleansing - Verkfæri til hreinsunar á gögnum
- Metadata Manager - Auðveldar alla umsýslu lýsigagna (metadata) og dregur þannig úr kostnaði fyrirtækja.
- Composer - Einfaldar verkefnastjórn og hjálpar til við hönnun flutningsferla (e. ETL jobs) í vöruhúsaverkefnum.
- Rapid Marts, tilbúnir gagnamarkaðir ofan á ýmis kerfi, s.s. SAP og Oracle
BO Data Integrator -öflugt ETL kerfi
Data Integrator (DI) er eitt öflugasta ETL (extract - transform - load) tólið á markaðnum í dag. DI les og skrifar nánast hvaða gagnagrunn sem er og býður upp á gríðarlegan lestrar- og skriftarhraða þar sem flestar aðgerðir eiga sér stað í vinnsluminni ETL aðgerðaþjónsins. Nauðsynlegt þar sem "lestrargluggar" gagnagrunnskerfa fara sífellt minnkandi
Samhliða lestur gagna (Parallel Processing)
Með samhliða lestri má sjálfvirkt dreifa einu verki (t.d. lestri gagnagrunns) yfir á marga verkþætti og margfalda þannig lestrarhraða.
Samhæfing við viðskiptakerfi
Data Integrator býður upp á afar öfluga samhæfingu við flest hinna þekktu ERP kerfa á markaðanum.
SAP samhæfing:
- Di býr sjálfkrafa til ABAP fyrir Batch keyrslur
- DI er samhæft við BAPI viðmót
- DI er samhæft við Inbound og Outbounds IDocs
- DI er vottað til að hlaða gögnum í SAP BW og skrifa í SAP R/3 grunna
Oracle OeBS samhæfing:
- DI styður bæði rauntíma og batch samhæfingu
- DI les Metadata úr Oracle grunnum
- DI notar Oracle Open Interface og getur lesið Fiexfields
- Rapid Marts - tilbúin vöruhús fáanleg fyrir flesta OeBS kerfishluta
Ýmiskonar legacy gögn
- DI les, flytur og hreinsar gögn úr kerfum eins og IBM IMS/VS, IBM VSAM, IDMS og ADABAS í gegnum sama viðmót og notað er á móti almennum gagnagrunnum.
Staðall í skýrslugerð
Með Crystal Reports geta skýrsluhönnuðir unnið skýrslur á mjög smekklegan og fjölbreyttan hátt. Þeim er síðan dreift innan og utan fyritækisins, allt eftir þeirri forskritf sem gefin hefur verið til dreifingar.
Crystal Reports er eitt útbreiddasta verkfæri til skýrslugerðar í heimi.
Mismunandi hópar, mismunandi þarfir
Það eru margar leiðir til að koma upplýsingum til skila og fólk hefur mismunandi þarfir. Með Crystal Reports eru útbúnar smekklegar skýrslur byggðar á gagnvirku innihaldi og viðkomandi upplýsingum síðan dreift til notenda. Álfar og forunnin mót hjálpa notandanum að móta skýrslurnar.
Gagnagrunnstengingar ákaflega sveigjanlegar auk þess sem tengja má Crystal Reports niður á nánast hvaða gagnaskrár sem er. Þá er Crystal Reports samhæft MS-Office og því fylgja þróunartól (SDK) fyrir ýmis hugbúnaðarumhverfi.
Crystal Reports er þekkt og viðurkennd lausn og er notað af yfir 500 sjálfstæðum þróunaraðilumm og er samhæft Microsoft, SAP, Borland, BEA og IBM.
Fullkomin samhæfing við MS-Office
Business Objects gerir sér grein fyrir mikilvægi þess að samhæfa skýrslur og upplýsingar við þau forrit sem viðskiptanotendur nota almennt. Nú er því hægt að tengja beint í gagnagrunna og skýrslur úr Microsoft Word, Excel og PowerPoint sem tryggir að notandinn þarf aldrei að fara úr því umhverfi sem hann þekkir best. Óþarft er að fjölyrða um áreiðanleika og öryggi gagna þar sem nýjustu gögnin eru alltaf fyrir hendi og þá halda útreikningar og útlit sér.
Eitt umhverfi fyrir alla viðskiptagreind
Allir þurfa upplýsingar
Stjórnendur eða aðrir starfsmenn þurfa réttar upplýsingar til þess að tryggja gæði þeirra ákvarðana sem taka þarf. Þeir verða að geta treyst upplýsingunum, greint þær og dreift til þeirra sem á þurfa að halda.
Einsleitt umhverfi - Lægri kostnaður
Fyrirtæki og stofnanir fjárfesta í margskonar hugbúnaði sem ætlað er að hjálpa stjórnendum við ákvarðanatöku og viðskiptastjórnun. Oft er hins vegar erfitt og nánast ómögulegt að tengja þessi kerfi saman þar sem þau eru í eðli sínu ólík. Einsleitt umhverfi fyrir alla viðskiptagreind sparar því bæði tíma og fjármuni.
Viðskiptagreindarumhverfi frá Business Objects
Viðskiptagreindarumhverfi þarf að geta stutt við allar mögulega og ómögulegar viðskiptalegar þarfir notenda. Þess vegna hefur Business Objects lagt sig fram um að þróa viðskiptagreindarumhverfi sem er skalanlegt, sveigjanlegt og umfram allt mjög öflugt. Það vinnur með öllum helstu gagnagrunnum og stýrikerfum sem í notkun eru.
Þá eru til Integration kit fyrir hin ýmsu kerfi s.s. SAP og Oracle.
Helstu kerfishlutar
Viðskiptagreindarumhverfiði frá Business Objects inniheldur ýmsa kerfishluta. Þeir helstu eru:
- CMC; veflægt sjórnkerfi umhverfisins
- Infoview; vefgluggi (e Portal) notenda að upplýsingum
- Encyclopedia; orðskýringar eða glósur með skýrslum
- Process tracker; tengir saman viðskiptagreind og viðskiptaferla
- SDK; þróunartól fyrir hin ýmsu forritunar umhverfi, m.a. .NET og JAVA
- Live Office; "Plug in" fyrir MS-Office forrit, sem tryggir tengingu í frumgögn
- Scheduling; tryggir að skýrslur eru keyrðar þegar þess þarf
- Auditing; eftirlit með notkun umhverfisins
- Discussions; umræðuþræðir með einstaka skýrslum
- Designing; til hönnunar á merkingarlagi sem er grundvöllur fyrir m.a. skýrslugerð
- Publishing; sér um að senda út upplýsingar, t.d. úr einstaka skýrslum til valdra notenda
- OLAP Explorer; leyfir notendum að bora ofan í forsniðna OLAP teninga
- CR Explorer; leyfir notendum að bora ofan í Crystal Reports skýrslur
Leyfismódel
Business Objects býður upp á tvær mismunandi leiðir í leyfismálum. Þessar leiðir taka mið af þörfum notenda.
Vörulýsingar
BO EnterpriseInfoview
Veflægt stjórnkerfi CMC
Live Office
Scheduling og Publising
Process tracker
Encyclopedia

