Þjónusta

Gæðaþjónusta við viðskiptavini

Þjónustustefna - ánægðir viðskiptavinir

Viðskiptagreindarhópur Skýrr leitast við að safna ánægðum viðskiptavinum. Við erum sannfærð um að lykillinn að árangri liggi í því að setja viðskiptavinina og þarfir þeirra í forgang. Höfuðmarkmið okkar er því ávallt að veita fyrsta flokks þjónustu. 

Aðeins þannig náum við að standa undir okkar eigin gildum í rekstri fyrirtækisins: Frumkvæði, fagmennsku þjónustulund og jákvæðni.

Viðhaldssamningar Business Objects

Við kaup á vörum frá Business Objects er undirritaður viðhalds-samningur sem gefur kaupanda rétt á fríum uppfærslum á líftíma samningsins. Viðskiptagreindarhópur Skýrr hf fylgist með nýjungum og uppfærslum og tilkynnir viðskiptavinum þegar rétt er að uppfæra í nýrri útgáfur.

Nýskráning hugbúnaðar

Mikilvægt er að skrá hugbúnað á vefsvæði Business Objects til að nýta megi aukið aðgengi að ýmsum þjónustuþáttum Business Objects. Ef vara hefur ekki verið skráð strax við innsetningu má finna skráningarform á þessari síðu.

Þjónustubeiðni

Við erum ávallt til þjónustu reiðurbúin. Óska má eftir aðstoð frá Viðskiptagreindarhóp Skýrr á eftirfarandi hátt:

  • Senda póst á netfangið bosuppport@skyrr.is. Pósturinn skal innihalda upplýsingar um kerfisumhverfi, vandamál, villuboð og annað það sem skipt getur máli.
  • Hringja í 569 5100 og bera erindið upp við þjónustuborð Skýrr.