PerformancePoint

Árangursstjórnun með PerformancePoint

Microsoft Office PerformancePoint Server er viðskiptagreindarlausn innan Microsoft Business Intelligence, sem gerir fyrirtækjum kleift að fylgjast með árangri í rekstri, greina hvar úrbóta er þörf og gera áætlanir.

PerformancePoint er með allt sem að þarf fyrir markvissa árangursstjórnun, meðal annars skorkort, mælaborð, skýrslugerðartól, greiningarmöguleika, áætlanagerð, rekstrarspár og samstæðuuppgjör. Lausnin nær til alls starfsfólks í fyrirtækinu.

Með Microsoft Office PerformancePoint Server...

  • geta stjórnendur deilt út ábyrgð
  • getur starfsfólk mælt árangur, greint vandamál og áætlað með einni lausn
  • gerir tæknifólki auðveldara fyrir þar sem allt er i einni lausn, sem samtvinnar viðskiptagreind og árangursstjórnun
  • er starfsfólkið í vönu umhverfi Excel og Office við áætlanagerð og árangursstjórnun
 

Heildarmyndin með PerformancePoint

Lausnin Microsoft Office PerformancePoint Server skiptist í þrjá hluta: Monitor, Analyze og Planning.

Monitor
Í þessum hluta er hægt að búa til skorkort, mælaborð, skýrslur og annað sem þarf til að fylgjast með hvernig gengur í daglegum rekstri. Viðmótið er einfalt og ekki er nauðsynlegt að vera tæknimaður til að nota tólið.

Analyze
Í þessum hluta eru framkvæmdar greiningar, meðal annars til að leita uppi vandamál eða veika/sterka þætti í rekstrinum. Þessi hluti lausnarinnar byggir á hinu vinsæla og vel þekkta greiningartóli ProClarity.

Planning
Í þessum hluta eru gerðar áætlanir. Hægt er að gera flóknar reglur til að leysa flóknar aðgerðir. Hægt er að hafa breytileg (dynamic) eða föst tímabil. Kerfið getur gert sjálvirk samstæðuuppgjör ásamt því að hægt er að vinna með mismunandi gjaldmiðla og reikna þar á milli. Vinnan hjá endanotandanum fer öll fram í Excel sem flestir þekkja og líður vel að vinna í.

 

Nánari upplýsingar

skyrr@skyrr.is