SharePoint
Núverandi aðstæður í efnahagslífinu gera það að verkum að sjaldan eða aldrei hefur verið jafn mikilvægt að hafa góða yfirsýn á samskipti, gagnaumsýslu, hópvinnu og upplýsingamiðlun á vinnustöðum.
Ítarefni
Microsoft SharePoint (vefsíða)
Nánari upplýsingar
Hafðu samband við sérfræðinga Skýrr í Microsoft samskiptalausnum
Netfang: sharepoint@skyrr.is
Sími: 569 5100
Microsoft SharePoint 2007
Microsoft SharePoint er stöðluð vefgátt með einföldu viðmóti sem hentar vel til að halda utan um hvers konar skjöl, verkefni, ferla og upplýsingar. Með virkri notkun á SharePoint gáttinni eykst upplýsingaflæði innan fyrirtækisins og starfsmenn eiga auðveldara með að deila þekkingu og upplýsingum sín á milli hvort sem þeir eru staddir innan eða utan fyrirtækis.
Tengist Microsoft hugbúnaði
Microsoft SharePoint er hefur einfalt viðmót, er einfalt í notkun og uppsetningu og samþættingu en það tengist auðveldlega öðrum hugbúnaði frá Microsoft á eins og Outlook, Excel og Word.
Einfalt viðmót
Högun SharePoint er einföld og þægileg, jafnvel fyrir þá sem hafa aldrei notað kerfið og búa ekki yfir tæknilegri þekkingu. Að breyta uppsetningu, hönnun og hversu nákvæmar upplýsingar birtast á síðunni er afskaplega einfalt og þægilegt.
Skjalakerfi
SharePoint er fullkomið skjalakerfi sem uppfyllir allar þær kröfur sem nútíma skjalakerfi þarf að uppfylla. Leitin er mjög öflug í Sharepoint og hægt að stilla hana þannig að leitað er í eldri gögnum sem liggja á netdrifum sem og á sjálfum SharePoint servernum. SharePoint heldur líka utan um breytingasögu skjala, útgáfustýringu og lýsigögn skjala.
Hafðu samband og fáðu kynningu á SharePoint hjá Skýrr.
Samskiptagátt
SharePoint er öflug samskiptagátt. Allar upplýsingar fyrirtækisins eru geymdar á einum stað og starfsmenn geta nálgast allar þær upplýsingar sem þeir hafa aðgang að, auk þess sem í SharePoint er hægt að setja upp fjölbreytta ferla vegna samþykkta, umsókna og annarraupplýsingamiðlunar.
Öflug vefgátt
Til að tryggja öflugt flæði upplýsinga innan fyrirtækisins, ætti innri vefur í SharePoint að vera fyrsti snertiflötur allra starfsmanna þegar þeir opna tölvukerfin á morgnana, óháð því hvaða hlutverki þeir gegna í fyrirtækinu. SharePoint gáttin gerir það að verkum að auðvelt er að sérsníða vefi og vefsíður fyrir starfsmenn, hópa og deildir, allt eftir þörfum hvers og eins. Sömuleiðis er hægt að setja upp extranetsvefi með innskráningar möguleika fyrir viðskiptavini sem og ytri vefi.
Samþætting
SharePoint býður upp á víðtæka leit í öllum skjölum og hægt er að stilla leitina þannig að hún leiti í kerfum fyrir utan SharePoint svæðið. Sömuleiðis er hægt að birta margs konar fjárhagslegar upplýsingar upp úr skjölum og kerfum og tengjast öðrum kerfum í gegnum vefþjónustur.
Efnisuppsetning og skipulag
Þegar byrjað er á nýju verkefni í Sharepoint er mikilvægt að átta sig á því hvernig landið liggur. Sérstakar lausnir eru settar upp fyrir innrivefi en aðrar fyrir ytri vefi svo eitthvað sé nefnt. Mikilvægt er einnig að átta sig á því hvaða gögn eiga að vera á vefsvæðinu en út frá því eru efnisgerðir (content types) ákveðnar.Líftími skjala
Þá skiptir líftími skjala máli og flæði þeirra. Gera má ráð fyrir að tíðari uppfærslur skjala eigi sér stað á samvinnusvæðum (team sites) en í skjalageymslum (record center) en mögulegt er að koma upp flæði á milli þessara tegunda vefsvæða í Sharepoint.
Verkferli
Eiga gögn t.d. að flæða með verkferli (workflow) yfir í skjalasafn þegar ekki hefur verið unnið með þau í tiltekinn tíma? Starfsmenn Skýrr leiða viðskiptavini ávallt í gegnum skilgreiningarferli og leita svara við nauðsynlegum spurningum í upphafi sem auðveldað munu vinnu síðar í ferlinu.
Umbrot og útlit
Með útgáfu Sharepoint Designer má segja að vinna við útlit og umbrot vefsíðna í Sharepoint hafi verið einfölduð til muna. Hluti af vinnu við útlit og umbrot fellur þó þar fyrir utan en nauðsynlegt er að pakka stílsniðum og mastersíðum inn í skjalatýpur sem kallast "features" og "solutions". Er þetta gert m.a. til þess að auðvelt sé að færa útlit frá einu vefsvæði til annars, m.a. þegar vefur er unnin á þróunarsvæði en síðar færður á aðra vél þegar kemur að útgáfu.
Vefpartasmíði
Á líkan hátt eru vefpartar einingar sem hægt er að bæta við tilbúin vefsvæði. Með Sharepoint kemur fjöldi vefparta sem nota má við uppsetningu vefja. Skýrr hefur einnig þróað vefparta eftir séróskum viðskiptavina sinna. Sá möguleiki er líka fyrir hendi að kaupa vefparta af þriðja aðila, en fjöldi fyrirtækja býður nú upp á Sharepoint-vefparta til sölu á Netinu.
Uppsetning
Starfsmenn Skýrr eru til ráðgjafar um uppsetningu grunnumhverfis. Miklu skiptir að leggja vinnu í skipulag og uppsetningu véla áður en hafist er handa við uppsetningu vefsvæða. Þar þarf að huga að uppsetningu vef-búa (web farms), staðsetningu vefsvæða með tilliti til öryggis og hraða í vinnslu.

