iFolder

Auðvelt og öruggt aðgengi gagna

iFolder notendur hafa óhindraðan aðgang að mikilvægum skjölum og vinnugögn gegnum Internetið, hvar og hvenær sem er.


Kostir iFolder

  • Með iFolder hefur þú aðgang að mikilvægum gögnum óháð því á hvaða tíma þú þarf að nálgast þau.
  • Auðvelt aðgengi að skjölum og gögnum hvort sem er heima, í vinnunni og á ferðalögum.
  • Aðgangsstýring er einföld og örugg.
  • Þú getur verið viss um að þú ert ávallt að vinna í nýjustu útgáfunni hverju sinni.
  • Gögnin eru fullkomlega örugg.
  • iFolder-þjónustan er einnig óháð hverskonar hugbúnaði og vélbúnaði í MS Windows-umhverfi.
  • Afrit eru tekin af gögnum daglega.

Gögn og skjöl sem notendur geyma í sérstakri iFolder-möppu á vinnustað eru sjálfkrafa spegluð og uppfærð í miðlægri gagnageymslu Skýrr og þar er hægt að nálgast skjölin þegar hentar, hvort heldur gegnum tölvur á staðarneti eða hefðbundinn vafra (browser) í öllum tölvum með tengingu við Internetið.

iFolder-þjónustan er hraðvirk, þægileg og hagkvæm

Skýrr býður nú áhugasömum notendum áskrift að iFolder með 1,5 GB vinnslu- og geymslurými.