Erindreki

Heildarlausn í skjala- og málautanumhaldi

Erindreki er fullkomið skjala- og málakerfi fyrir fyrirtæki og stofnanir. Kerfið er hannað og forritað af Skýrr og er í notkun víða. Það heldur utan um öll skjöl og verkefni fyrirtækja.

Einnig má benda á vöruna Envoy sem er skjala- og verkefnalausn fyrir atvinnulífið.

Tæknin

Erindreki er Windowsbiðlari (client). Vallistar og málaupplýsingar eru vistaðir í SQL gagnagrunni. Mjög auðvelt er að tengja Erindreka við önnur kerfi fyrirtækja t.d. viðskiptamannaskrár. Þá er einnig mjög öflug tenging við Outlook, Word, Excel og PowerPoint forritin frá Microsoft en Erindreki er tengdur þessum forritum beint og því auðvelt fyrir notendur að vinna áfram í Office forritum og vista þaðan í Erindreka.

Kostir

Helsti stykleiki Erindreka felst í einföldu notendaviðmóti og góðum leitarmöguleikum, ásamt fjölbreyttu málakerfi. Samræmd vinnubrögð stjórnenda og starfsmanna leiða til aukins hagræðis. Erindreki stenst kröfur Þjóðskjalasafns til skjalavistunarkerfa og fylgir helstu stöðlum í skjalastjórnun. Gerðu kröfur um gott aðgengi upplýsinga og utanumhald málefna.

  • Málakerfi með margvíslegum kostum
  • Skjalavistun á öllum helstu skráarsniðum
  • Skjöl vistuð inn í fullkomið skjalavistunarkerfi
  • Skönnunarlausn með ýmsum möguleikum
  • Öflug aðgangsstýring
  • Funda- og fundagerðarkerfi
  • Skilgreiningar á ábyrgð verkefna
  • Einsleitt umhverfi fyrir skjalavistun
  • Mjög öflug leit
  • Öll skjöl á einum stað