Diana

DIANA er heildar upplýsinga- og stjórnunakerfi á heilbrigðissviði. Díana fylgir kröfum frá Landlæknisembættinu og kröfum um gagnaöryggi. 

Hvað er DIANA ?

Hönnun kerfisins hófst hjá fyrirtækinu Rhea ehf. árið 2002 og hét þá kerfið Locus. Skýrr tók við þróun kerfisins í desember 2003 og heitir það nú DIANA (stendur fyrir DIagnoseandANAlyse). DIANA heldur utan um allar skráningar á meðferð sjúklinga og nýtist fyrir allt heilbrigðissviðið á Íslandi. Hönnun kerfisins tekur mið af þörfum notenda og rík áhersla er lögð á að uppfylla kröfur þeirra á hverjum tíma ásamt því að vinna breytingar og nýjungar í kerfinu hratt og vel.
Einungis með stöðugri framþróun er hægt að uppfylla sífellt strangari kröfur sem gerðar eru til kerfa af þessu tagi. DIANA er hannað með framþróun í huga sem gerir alla aðlögun og breytingar afar þægilegar.  


Nánari upplýsingar

skyrr@skyrr.is

Díana í stuttu máli

  • Díana er ætluð heilbrigðisgeiranum
  • Díana er upplýsinga- og stjórnunarkerfi
  • Díana uppfyllir kröfur Landlæknisembættisins
Kerfið inniheldur í dag margvíslega möguleika:

  • Rafræn skil til TR
  • Sölureikninga
  • Lyfseðla
  • TR eyðublöð
  • Dagbók læknis / hópa / tækja Stundaskrá sjúklinga Tengingu við Þjóðskrá
  • Bréfasendingakerfi
  • Tenging við Microsoft Outlook
  • Lyfjagjafir og sérlyfjaskrá
  • Sjálfvirka leit í Sérlyfjaskrá
  • Læknaskrá
  • ICD-10 greiningarlista
  • NCSP greiningarlista
  • Ofnæmisskráningu
  • Almenn eyðublöð
  • Vinnublöð
  • Samantekt á gögnum sjúklings
  • Rannsóknakerfi og tækjatengingar
  • Uppsetjanlega flýtitexta í sjúkrasögu
  • Skjalageymslu (fyrir myndir og öll rafræn skjöl)
  • Myndvinnsla
  • Sjálfvirkar uppfærslur á stofnskrám
  • Uppfærslur á eyðublöðum í gegnum internetið
  • Útflutning gagna (export)
  • Fyrirspurnarkerfi
  • Hjúkrunarskráningar (NIC, NOC og NANDA) Leguskráningar Tengingar við viðskiptagreindartól s.s. Business Object og fleira

DIANA býður upp á myndvinnslu þar sem hægt er, með auðveldum hætti, að bera saman myndir frá sama sjúklingi sem teknar eru á mismunandi tíma. Teikna og skrifa má inn á myndirnar eins og við á hverju sinni.



Auðvelt er til dæmis að setja myndir frá stafrænum myndavélum inn í skjalageymslu kerfisins.

Uppsetning

Notandinn hefur marga möguleika við uppsetningu DIANA. Hann getur:

  • sett saman sína eigin greiningarlista
  • búið til sína eigin flýtitexta
  • sett saman sín eigin læknabréf
  • hannað eigin vinnublöð
  • stofnað nýjar rannsóknir
  • búið til vinnublöð
  • sett upp rannsóknarhópa
  • sett saman rannsóknir sem sýndar eru í töfluformi
  • búið til flýtilista fyrir TR reikninga
  • búið til flýtilista fyrir komuástæður

Ef þess er óskað er notanda að sjálfsögðu hjálpað við uppsetningu á kerfisins eins og þörf er hverju sinni.

Skýrr býður einnig upp á samskiptalausnir sem tryggja öryggi rafrænna upplýsingasendinga milli aðila er starfa á heilbrigðissviði.

Læknanetið er lokað og öruggt net sem er þróað og hannað í samvinnu við sérlækna og starfsfólk heilbrigðisstofnana á ýmsum sviðum. Öll hönnun tekur mið af þörfum og óskum þessara aðila. Samskipti eru dulkóðuð frá upphafi til enda og allir notendur eru Verisign vottaðir sem tryggir öryggi allra upplýsinga sem sendar eru milli aðila. Engar upplýsingar fara um netið án þess að vera fara fyrst í gegnum 128 bita dulkóðun.

Ýmis konar efni má senda rafrænt yfir Læknanetið:

  • Læknabréf má senda milli einstakra lækna, frá einum til læknahópa eða frá læknum til heilsugæslustöðva.
  • Læknabréf má “birta” eða gera opinber gagnvart einstökum læknum eða gagnvart skilgreindum hópum sem hafa aðgang að læknanetinu.
  • Skilagreinar og rafrænir reikningar (frá læknum til TR, bæði reikningauppgjör sem og efnislista og reikninga)
  • Rannsóknarniðurstöður má senda rafrænt á milli lækna eða frá rannsóknarstofu til annarra aðila sem aðgang hafa að netinu.
  • Engin takmörk eru fyrir því efni sem senda má á milli aðila þar sem netið er ekki háð þeim endabúnaði sem það “talar við”.

Mikið áhersla er lögð á að tryggja notendavæn yfirlit þar sem nálgast má fyrri gögn sjúklings.


Þannig má, á öruggan máta, sjá öll gögn um viðkomandi sjúkling sem skráð hafa verið í kerfið. Vegna þess hversu yfirgripsmikið þetta yfirlitið er, hefur því verið skipt upp í nokkra glugga:

  • Fyrri komur sjúklings
  • Textasýn
  • Greiningar
  • Rannsóknir
  • Lyf
  • Eyðublöð
  • Skjöl
  • Reikningar

Einnig má fá yfirlit yfir lyfjakort sjúklings í yfirlitsglugganum. Hægt er að komast í fyrri sjúkraskrár úr yfirlitsgluggunum með einum músarsmelli.


Með DIANA fylgir öflugt bréfakerfi þar sem notandinn getur búið til sín eigin læknabréf. Í læknabréf má skrifa staðlaðan texta og setja inn kóða á viðeigandi staði og eru þá atriði úr sjúkraskrá sett inn sjálfkrafa. Bréfakerfið sparar mikinn tíma fyrir þá sem þurfa að senda mikinn fjölda læknabréfa eða stöðluð bréf til sjúklinga.

Eyðublöð

DIANA inniheldur helstu eyðublöð TR sem og öll helstu eyðublöð sem notendur þurfa við dagleg störf.

Uppfærsla eyðublaða í DIANA er leikur einn. Notandinn smellir á einn hnapp og þá er eyðublaðið með viðeigandi rannsóknum og mælingum uppfært í gegnum internetið og strax hægt að nota það.

Mjög auðvelt er einnig að hanna og búa til ný eyðublöð. Notandi getur sjálfur búið til eyðublöð eða beðið starfsfólk Skýrr að hanna þau fyrir sig.


Engar takmarkanir eru á útliti eyðublaðanna eða þeim rannsóknum og mælingum sem þar eru skráð. Hér að ofan má sjá TR eyðublað sem hefur verið hannað með svipuðu sniði og það kemur fyrir frá Tryggingastofnun.

DIANA heldur utan um þær rannsóknir og mælingar sem sjúklingur hefur farið í. Allar rannsóknir eru staðlaðar til að tryggja samræmi.

Stuðst er við LOINC rannsóknarstaðalinn sem inniheldur yfir 32.000 mismunandi rannsóknir og mælingarstaðla. Landlæknisembættið hefur mælt með notkun LOINC staðalsins á Íslandi. Skýrr hefur nú þegar staðfært hundruði rannsóknar- og mælingareyðublaða og fer þeim ört fjölgandi. Notkun LOINC staðalsins einfaldar stórlega allan samanburð og meðhöndlun gagnanna sem DIANA safnar um skjólstæðinganna.

Það þarf enga forritunarkunnáttu til þess að stofna nýja rannsókn og getur notandinn stofnað rannsókn eða breytt þeim sem fyrir eru að vild. Vikmörk mælingarniðurstaðna má breyta og skilgreina eftir kyni og aldri.

Rannsóknarniðurstöður eru sýndar með mismunandi hætti; á grafi, eins og sést hér að ofan, í tímaröð, kökuriti og á töfluformi eins og sjá má hér fyrir neðan. Birtingarform niðurstaðna er uppsetjanlegt af notanda.

Til að auðvelda samanburð má jafnvel sjá niðurstöður margra rannsókna á sama grafi.

Unnt er að nálgast þá sjúkraskýrslu sem tengist viðkomandi rannsókn með einum músarsmell og auðvelt er að setja rannsóknir inn í eyðu- eða vinnublöð.

Tengingar við rannsóknartækja

Kerfið býður upp á tengingar við margskonar rannsóknartæki fyrir sjálfvirka skráningu rannsóknarniðurstaðna. Þegar rannsóknartæki eru tengd við kerfið fara allar niðurstöðurnar sjálfvirkt inn í kerfið samkvæmt LOINC staðlinum sem tryggir samræmda og örugga skráningu gagna.

Öryggi

DIANA fylgir kröfum frá Landlæknisembættinu um upplýsingaöflun á heilbrigðissviði og uppfyllir einnig kröfur um gagnaöryggi þar sem unnið er með viðkvæmar persónuupplýsingar. Allar aðgerðir í kerfinu eru skráðar niður sem tryggir áreiðanleika og rekjanleika gagnanna.

Hraði

Gagnamagnið sem unnið er með í kerfum af þessu tagi er að jafnaði mjög mikið. Því hefur verið lögð rík áhersla á hönnun gagnagrunna og fyrirspurna í kerfinu. Þessi vinna hefur skilar sér skjótri svörun og vinnslu sem ætti að uppfylla ströngustu kröfur.