WebMethods Express
Skýrr setur nú á markaðinn þrjá hugbúnaðarpakka frá webMethods sem ætlaðir eru millistórum fyrirtækjum og opinberum stofnunum. Þessir hugbúnaðarpakkar eru:
- webMethods Express Integration,
- webMethods Express SOA Governance
- webMethods Express BPMS Business (Process Management Suite)
webMethods er án nokkurs vafa sá hugbúnaður á sviði samþættingar sem náð hefur mestri útbreiðslu hér á landi.
Hér er hægt að nálgast pdf kynningu: Webmethods.pdf
Nánari upplýsingar
skyrr@skyrr.isSveigjanleiki
Flest af stærstu og framsæknustu fyrirtækjum landsins byggja í dag högun sinna upplýsingakerfa á webMethods.
Það er álit þessara aðila að sveigjanleiki upplýsingakerfanna hafi aukist til muna með hinni nýju högun og öll vinna við uppbyggingu upplýsingakerfa þeirra sé nú mun skilvirkari.
WebMethods Express SOA Governance
Stöðugt færist í vöxt að fyrirtæki og stofnanir veiti viðskiptavinum sínum, starfsmönnum og öðrum aðgang að vefþjónustum innan viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar. Bæði getur verið um að ræða aðgang innan frá og ekki síður utan frá. Í báðum tilvikum, þó sérstaklega þegar um aðgang utan frá er að ræða, hefur þessi aðgangur í för með sér ýmis vandamál sem takast þarf á við en þau tengjast m.a. öryggi, afköstum og almennri stýringu á og eftirliti með þessum vefþjónustum.
webMethods Express SOA Governance er hugbúnaður sem auðveldar allt eftirlit og stjórnun á vefþjónustum m.a. með ofangreinda þætti í huga og er miðaður að aðstæðum miðlungsstórra fyrirtækja.
webMethods Integration
Á síðustu árum hefur sú stefna í upplýsingatæknimálum, sem byggir á samþættum upplýsingakerfum eða “Best of Breed” orðið æ álitlegri kostur þar sem miklar framfarir hafa orðið í hugbúnaðarkerfum sem auðvelda samþættingu ólíkra og ósamstæðra kerfa og hafa upplýsingatæknistjórar í æ ríkari mæli markað sínum fyrirtækjum og stofnunum þessa stefnu.
Í samstarfi við webMethods setur Skýrr á markaðinn webMethods Express Integration sem gefur fleirum færi á að nýta sér þessa tækni við uppbyggingu sinna upplýsingakerfa.
Eftirtaldar einingar eru í webMethods Express Integration pakkanum:
- webMethods Integration Server
- webMethods Developer
- webMethods Broker
- webMethods Adapter að eigin vali
Til viðbótar þessum einingum má velja milli neðangreindra eininga:
- webMethods Trading Networks
- webMethods Adapter að eigin vali til viðbótar þeim fyrri
Notkun á webMethods Express hugbúnaðinum
Þegar Express útgáfan af webMethods er keypt eru takmarkanir eftirfarandi:
- Búnaðinn má einungis tengja við 5 kerfi innanhúss
- 10 ytri aðilar geta tengst samþættingarþjóninum
Boðið er upp á viðbætur við webMethods Express sem m.a. fela í sér fjölgun þessara tenginga.
Hér er hægt að nálgast pdf kynningu: Webmethods express
webMethods Express BPMS
Hin hefðbundna sýn á upplýsingakerfi fyrirtækja og stofnana er út frá kerfum. Eitt kerfi þjónar bókhaldi, annað sölu, þriðja birgðahaldi, fjórða starfsmannahaldi o.s.frv. Á undanförnum árum hefur þróast önnur nálgun á upplýsingavinnsluna þar sem sjónarhornið er á verkferlana (e. Business Process). Nýlega hafa komið á markaðinn hugbúnaðarkerfi sem gera kleift að nálgast upplýsingavinnsluna á þennan hátt. webMethods hefur að margra áliti tekið forystu á þessu sviði með nýjustu útgáfunni af sínum hugbúnaði.
webMethods Express BPMS gerir meðalstórum fyrirtækjum kleift að nýta sér þessa tækni á mjög skilvirkan og framsækinn hátt.

