S5 Starfsfólk
S5 Starfsfólk er hugbúnaður sem heldur utan um bæði viðveru starfsmanna og upplýsingar sem þeim við kemur. Starfsmenn geta á auðveldan hátt skráð sig eða stimplað sig inn í gegnum netið og einnig látið Outlook dagbókina uppfæra stöðu sína sjálfkrafa.Hver kannast ekki við að leita að vinnufélaga um allt hús, hringja út um allt og það er slökkt á gsm símanum hans? Svo kemur í ljós að hann er á fundi með viðskiptavini uppi á næstu hæð! Eða í fríi, veikur eða staddur á ráðstefnu? Hvar býr hann Jón? Hvenær á forstjórinn afmæli? Hvernig lítur þessi Sigrún í markaðsdeildinni út?
Hleypt hefur verið af stokkunum nýrri útgáfu af Viðveru sem hefur hlotið nafnið S5-Starfsfólk, þar sem allir sem það eiga og mega, hafa aðgang að öllum þessum upplýsingum og meira til og það allt á einum stað. Tvíverknaður verður óþarfur þar sem S5-Starfsfólk er tengdur Outlook dagbókum starfsmanna. Þetta er aðgengilegt kerfi til þess að halda utan um viðveru starfsmanna. Kerfið byggir á Microsoft Exchange Server 2000. Allir starfsmenn sem hafa vefskoðara geta komist í S5-Starfsfólk, hvar sem þeir eru staddir - innan skrifstofunnar eða utan.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um S5 Starfsfólk veita ráðgjafar Skýrr. Sé þess óskað býður Skýrr upp á ítarlega kynningu á kerfinu og hvernig það getur nýst fyrirtækjum og stofnunum.Innleiðing og ráðgjöf
Hjá Skýrr starfa ráðgjafar með margra ára reynslu og víðtæka þekkingu á ráðgjöf í stjórnun upplýsinga- öryggis. Þeir veita aðstoð við innleiðingu kerfisins og framkvæmd áhættumats í samræmi við óskir og þarfir einstakra viðskiptavina.Dæmi um eiginleika S5-Starfsfólks:
- Hægt er að tengja S5-Starfsfólk viðExchange / Outlook dagbók sjálfkrafa.
- Auðvelt er að fylgjast með hvar starfsmenn eru.
- Mjög einfalt viðmót.
- Hentar sérstaklega vel fyrir deildarskipt og dreifð fyrirtæki.
- Haldið er utan um helstu upplýsingar um starfsmenn, svo sem síma, gsm, póstfang, heimili, kennitölu og fleira.
- Myndir af starfsmönnum.
- Sjálfvirk inn- og útskráning.
- Auðvelt í uppsetningu.
- Auðvelt að aðlaga.
S5 hugbúnaðarkerfið
S5 hugbúnaðarkerfið er hugbúnaður hannaður til að búa til sérsniðnar veflausnir. S5 er byggður upp á stökum einingum, sem raða má saman og búa þannig til sérsniðna hugbúnaðarlausn án mikils tilkostnaðar. Með því móti er hægt að spara mikla forritunarvinnu, sem felst í því að skrifa tölvukerfi frá grunni. Á skömmum tíma er til dæmis hægt að setja upp skjalastjórnunarkerfi, verkbeiðnakerfi, eða málakerfi, sem er fullkomlega aðlagað að þörfum viðskiptavinarins.Í stað þess að kaupa S5 lausn getur viðskiptavinur leigt aðgang að lausninni, sem þá er hýst hjá Skýrr eða öðrum hýsingaraðila.
Frekari upplýsingar um S5 Hugbúnaðarkerfið má finna hér

