Oracle starfsmannakerfi
Oracle starfsmannakerfið er hluti af mannauðskerfi Oracle (Oracle Human Resource System)
Stjórnun starfsmannamála
Virk stjórnun á mannauði fyrirtækja bætir til muna innviði fyrirtækja og er leið að bættri samkeppnishæfni. Oracle starfsmannakerfið er afar framþróuð mannauðslausn sem gefur fyrirtækjum kost á fjölda leiða til að einfalda viðskiptaferli, bæta innviði, stjórnun og samskipti við starfsmenn með því að nýta betur þær upplýsingar sem fyrir liggja. Kerfið getur þannig gjörbreytt stjórnun starfsmannamála og átt þátt í að stýra starfsþróun starfsmanna í takti við stefnu fyrirtækisins á hverjum tíma.
Kostir Netsins nýttir til fulls
Mannauðsstjórnunarlausn Oracle (Oracle HR) byggist á sjálfsafgreiðslukerfi í gegnum Netið. Það gerbreytir framkvæmdastjórnun og hvernig upplýsingum tengdum mannauði er dreift innan fyrirtækja. Oracle HR gefur fyrirtækjum kost á fjölda leiða til að einfalda viðskiptaferli, bæta innviðina og samskipti við starfsmenn með því að nýta betur þær upplýsingar sem fyrir liggja.
Fullkomlega samhæft kerfi - einingum bætt við eftir þörfum
Kerfishlutar Oracle HR spila saman og mynda eitt heildstætt mannauðskerfi sem heldur utan um allar upplýsingar um starfsmenn fyrirtækisins. Miklir möguleikar skapast við að hafa allar upplýsingar í einu kerfi þar sem hægt er að tengja mismunandi starfsmannaupplýsingar saman. Hins vegar er einnig mögulegt að innleiða aðeins ákveðna kerfishluta (t.d. aðeins starfsmannakerfi eða fræðslukerfi) og bæta svo við eftir þörfum.
Fjölbreyttir möguleikar
Það eru margir mismunandi möguleikar í boði til að skrá upplýsingar inn í Oracle-starfsmannakerfið, svo sem algengar persónuupplýsingar, upplýsingar um menntun, endurmenntun, starfsferil, starfsþróun, starf, starfsheiti, kröfur til starfs, deildir, skipurit, laun og margt fleira. Allar upplýsingar sem tengjast starfsmanni í kerfinu eru síðan tengdar saman í eina heild. Með greiningartæki lausnarinnar er síðan mjög auðvelt að taka út, greina og bera saman mismunandi starfsmannaupplýsingar innan fyrirtækisins.
Saga starfsmanna er skráð í kerfið og haldið er utan um sögu breytinga í kerfinu. Það er ávallt tiltækt yfirlit yfir starfssögu starfsmanns í kerfinu og einnig er hægt er að stilla kerfið fram og aftur í tíma og skrá inn og skoða breytingar sem hafa verið gerðar á mismunandi dagsetningum.
Sjálfsafgreiðsla í gegnum Netið - sparnaður og aukin ánægja
Í gegnum Netið hafa starfsmenn aðgang að og geta uppfært persónulegar upplýsingar, sótt um námskeið, fylgst með skráðri starfsþróun sinni og skoðað launaseðla og launayfirlit. Þetta sparar vinnu og eykur nákvæmni við viðhald upplýsinga hjá starfsmannadeildum fyrirtækja/stofnana og getur virkað mjög hvetjandi á starfsmenn þar sem þeir geta til dæmis fylgst með starfsþróun sinni í kerfinu og komið með tillögur um breytingar. Verkefnastjórar eða millistjórnendur geta ráðið starfsmenn og/eða fengið yfirsýn yfir hvaða núverandi starfsmenn koma til greina í ákveðin verkefni. Öll svið fyrirtækisins verða sjálfbjarga þegar kemur að mannauði sem leiðir til þess að þeir starfsmenn sem sinna starfsmannamálum fá meiri tíma til að sinna stefnumótun og öðrum mikilvægum málum.
Öll launamál einfaldast
Fullkomið launakerfi er hluti af Oracle HR, launakerfið er algerlega samhæft öðrum einingum Oracle viðskiptalausna og hefur verið aðlagað íslenskum aðstæðum. Launakerfið ræður við hátt flækjustig og er nú notað við launagreiðslur um 50.000 launþega á Íslandi.
Samhæfðar upplýsingar
Með því að hafa í einum gagnagrunni allar upplýsingar um starfsmenn fyrirtækisins er hægt að tengja saman ólík gögn sem saman mynda verðmætar upplýsingar um mannauð fyrirtækisins á hverjum tíma. Þannig er til dæmis hægt að tengja upplýsingar um kröfur til starfa við upplýsingar um laun, hæfni, menntun og starfsþróun viðkomandi starfsmanna. Slíkar upplýsingar geta t.d. verið grundvöllur ákvarðana um þróun starfa og starfsmanna til framtíðar.
Í sjálfsafgreiðslu kerfisins er hægt að skilgreina ákveðin ferli umsókna á til dæmis ýmsa viðburði eða umsókna um laus störf og það sparar vinnu við utanumhald og skráningu og tryggir nákvæmni og eftirlit.
Öflugar aðgangsstýringar tryggja trúnaðarupplýsingar
Stýrður aðgangur er að öllum upplýsingum í kerfinu þar sem hægt er að skilgreina bæði hvaða starfsmenn viðkomandi aðili á að hafa aðgang að í kerfinu og einnig hverskonar upplýsingar og hvers konar skjámyndir viðkomandi geti séð í kerfinu. Almennir starfsmenn hafa yfirleitt einungis aðgang að eigin upplýsingum í gegnum sjálfsafgreiðslu kerfisins.
Íslenskt viðmót
Oracle starfsmannakerfið er aðlagað íslenskum aðstæðum. Allar skjámyndir kerfisins eru til að mynda þýddar yfir á íslensku. Einnig er kerfið tengt við þjóðskrá og sækir þangað ýmsar upplýsingar sem sparar vinnu við innslátt og viðhald upplýsinga í kerfinu.
Aukinn sparnaður - meiri nákvæmni
Oracle HR getur sparað fyrirtækjum/stofnunum verulegar fjárhæðir með betri nýtingu mannauðs og auknum möguleikum og nákvæmni í upplýsingum um starfsmenn fyrirtækisins á hverjum tíma. Dæmi um þetta eru eftirfarandi:
- Í sjálfsafgreiðslu kerfisins hafa starfsmenn aðgang að og geta breytt skilgreindum upplýsingum um sjálfa sig. Stjórnendur hafa aðgang að og geta breytt upplýsingum um sína starfsmenn. Þetta sparar vinnu við viðhald upplýsinga hjá starfsmannadeildum fyrirtækja/stofnana.
- Ábyrgð á viðhaldi upplýsinga færist nær þeim aðilum sem þurfa á þessum upplýsingum að halda. Þetta tryggir betur nákvæmni og stöðugt viðhald þessara upplýsinga.
- Öll svið fyrirtækisins verða sjálfbjarga um skráningu og nálgun á upplýsingum um mannauð. Öll svið fyrirtækisins geta þannig ávallt haft aðgang að þeim upplýsingum um starfsmenn sem skipta máli á hverjum tíma. Þetta auðveldar til muna vinnu starfsmannahalds fyrirtækja/stofnanna.
- Með því að hafa í einum gagnagrunni allar upplýsingar um starfsmenn fyrirtækisins er hægt að tengja saman ólík gögn sem saman mynda verðmætar upplýsingar um mannauð fyrirtækisins á hverjum tíma. Þannig er t.d. hægt að tengja upplýsingar um kröfur til starfa við upplýsingar um laun, hæfni, menntun og starfsþróun viðkomandi starfsmanna á hverjum tíma. Slíkar upplýsingar geta t.d. verið grundvöllur ákvarðana um þróun starfa og starfsmanna til framtíðar.
- Í sjálfsafgreiðslu kerfisins er hægt að skilgreina ákveðin ferli umsókna á t.d. ýmsa viðburði eða umsókna um laus störf og það sparar vinnu við utanumhald og skráningu og tryggir nákvæmni og eftirlit. Sem dæmi um þetta má nefna að í fræðslukerfinu geta bæði stjórnendur og starfsmenn sótt um að fara á námskeið eða aðra fræðsluviðburði sem skilgreindir eru í kerfinu. Skilgreind eru ákveðin samþykktarferli fyrir slíkar umsóknir, t.d. þannig að stjórnendur verði að samþykkja slíkar umsóknir starfsmanna sinna. Kerfið heldur síðan á einfaldan hátt utan um allar umsóknir, biðlista, laus pláss og fleira og sendir viðkomandi aðilum tilkynningar um stöðuna á hverjum tíma. Þetta getur sparar t.d. starfsmannahaldi og fræðslustjórnum fyrirtækja/stofnana mikið starf við utanumhald og skráningu á upplýsingum.

