Verkefnastjórnun

Skýrr hefur mikla reynslu af stjórnun verkefna í þróun og innleiðingu upplýsingakerfa. Stundum er um að ræða verkefni þar sem Skýrr hefur séð um undanfarandi greiningu og val búnaðar. Skýrr hefur marga reynda og hæfa verkefnisstjóra og verklagsreglur í gæðakerfi Skýrr styðja sérstaklega við verkefnisstjórnunarferlið. Fyrirtæki eru sífellt að gera sér betur grein fyrir mikilvægi góðrar verkefnastjórnunar í verkefnum á sviði upplýsingamála þar sem fagleg vinnubrögð skipta oft sköpum um niðurstöðu verksins. Fjölmargir verkefnisstjórar Skýrr hafa hlotið vottun frá Alþjóða verkefnisstjórnunarsambandinu (International Project Management Association eða IPMA).  

Skýrr býður upp á ráðgjöf og aðstoð við:

  • Verkefnastjórnun í einstökum verkefnum.
  • Innleiðingu verkefnastjórnunar hjá fyrirtækjum.
  • Innleiðingu og utanumhald á verkefnaskrá hjá fyrirtækjum.
  • Innleiðingu á verkefnastofu hjá fyrirtækjum.
  • Val á aðferðafræði, tækjum og tólum til verkefnastjórnunar.

               
Segja má að tilgangurinn með góðri verkstjórn sé þríþættur:

  • Að tryggja að virkni og gæði búnaðarins sem verið er að smíða eða innleiða uppfylli væntingar og kröfur.
  • Að verkefnið gangi eftir verkáætlun og ljúki á réttum tíma.
  • Að kostnaður víki sem minnst frá því sem gert var ráð fyrir.

Hlutverk verkefnastjóra er meðal annars eftirfarandi:

  • Annast áætlanagerð í upphafi verks.
  • Að sitja verkfundi og rita fundargerðir verkfunda.
  • Að halda utan um verkskjöl og skrár.
  • Að sjá um að spurningum um útfærslu kerfis sé svarað fljótt og vel.
  • Að fylgjast með að kerfið sé útfært samkvæmt þeim tæknilegu forsendum sem liggja til grundvallar.
  • Að fylgjast með framvindu verksins með hliðsjón af verkáætlun.
  • Skoðun og viðtaka verkþátta.
  • Skipulagning og framkvæmd kerfis- og viðtökuprófana.