Þjónustuver

Þjónustuver Skýrr er opið allan sólarhringinn, alla daga ársins, 24/7.  Þar er tekið á móti fyrirspurnum og ábendingum viðskiptavina í síma eða í gegnum tölvupóst.

Þjónustuborð 24/7

Á þjónustuborði 24/7 fer fram vöktun og eftirlit ásamt tæknilegri aðstoð og útkallsþjónustu fyrir viðskiptavini fyrirtækisins. Starfsmenn þjónustuborðs hafa áratugareynslu af notendaþjónustu og eftirliti með rekstri tölvukerfa. Þeir búa yfir sérþekkingu á úrvinnslu gagna. Þar má til dæmis nefna framsetningu reikninga, útprentun eða rafræna birtingu og úrtakavinnslur úr ýmsum opinberum gagnagrunnum eins og þjóðskrá og fyrirtækjaskrá.

 

                                         

Nánari upplýsingar

Þjónustuver tekur á móti fyrirspurnum og ábendingum viðskiptavina í síma 569 5112 eða á netfangið hjalp@skyrr.is

Við sérhæfum okkur í breytilegri prentun, uppsetningu og framsetningu skjala, sem svo er skilað til útprentunar og/eða með rafrænum hætti til viðtakanda, hvort sem er á rafrænu formi að eigin vali, í heimabanka eða í viðskiptamannakerfi viðtakanda. Einnig tökum við að okkur pökkun í umslög og flutning til dreifingaraðila.

Viðskiptavinir fá aðgang að vefsíðu þar sem hægt er að senda inn gögn, samþykkja uppsetningu og útlit, fylgjast með framgangi verkefna og halda utan um lagerstöðu forprentaðs pappírs ef þarf.
Upplýsingaheimar er vefsvæði þar sem viðskiptavinir geta með einföldum hætti fengið aðgang að upplýsingum úr eftirfarandi gagnagrunnum.
  • Ökutækjaskrá 
  • Þjóðskrá 
  • Fyrirtækjaskrá 
  • Vinnuvélaskrá 
  • Hlutafélagaskrá 
  • Veðbönd fasteigna 
  • Veðbönd bifreiða 
  • Fasteignaskrá

Nánari upplýsingar á Upplýsingaheimum

Skýrr miðlar þjóðskrá og fyrirtækjaskrá til viðskiptavina með daglegum, vikulegum eða mánaðarlegum uppfærslum. Einnig vinnum við markhópalista eða úrtök úr þjóðskrá, fyrirtækjaskrá, ökutækjaskrá o.fl. fyrir viðskiptavini.

Smelltu hér til að skoða samning um Þjóðskrá með daglegum uppfærslum.
Smelltu hér til að skoða samning um Þjóðskrá með mánaðarlegum uppfærslum.

Hjá þjónustuveri Skýrr er boðið upp á vöktunarþjónustu ásamt símsvörun fyrir viðskiptavini utan hefðbundins skrifstofutíma. Þjónustuborð Skýrr er opið allan sólarhringinn alla daga ársins, þar starfa sérfræðingar með mikla reynslu af vöktun og rekstri tölvukerfa.

Kerfisvöktun getur verið með ýmsum hætti og gildir þá einu hvort um er að ræða tölvubúnað hjá viðskiptavinum eða búnað sem er hýstur í vélasölum Skýrr. Starfsmenn þjónustuborðs Skýrr sinna einnig símsvörun og notendaaðstoð fyrir viðskiptavini sem geta þannig lágmarkað þörfina á að mönnuðum bakvöktum.