Oracle þjónusta
Oracle viðskiptalausnir
Hjá Viðskiptalausnum Skýrr starfar stór hópur sérfræðinga með mikla og fjölbreytta reynslu og þekkingu.
Ráðgjafar
Ráðgjafarnir hafa mikla reynslu og þekkingu á möguleikum Oracle viðskiptalausna. Flestir ráðgjafanna eru háskólamenntaðir sérfræðingar í flóknum viðskiptaferlum fyrirtækja og stofnana og hafa víðtæka starfsreynslu sem slíkir. Mikil áhersla er lögð á að ráðgjafar fylgist vel með öllum nýjungum – bæði í Oracle viðskiptalausnum sem og á sínu faglega sérsviði.
Í ráðgjafahópi Viðskiptalausna er m.a. að finna ráðgjafa með víðtæka þekkingu og reynslu í:
- Stjórnun og skipulagningu mannauðs
- Launavinnslu og rekstri launa- og starfsmannakerfa
- Greiningu, uppsetningu og rekstri mannauðskerfa
- Bókhaldi, greiningarvinnu og uppgjöri
- Greiningu, uppsetningu og rekstri fjárhagskerfa
- Vörustýringu og innkaupaferlum
- Innleiðingu, uppsetningu og rekstri verkbókhalds- og vörustýringarkerfa.
- Viðskiptagreind
- Rafrænum ferlum
- Skeytamiðlara
Viðbætur og þróun
Miklir möguleikar eru í boði varðandi aðlögun kerfa að mismunandi aðstæðum og hafa nú þegar verið þróaðar ýmsar sérlausnir og viðbætur sem eru samhæfðar Oracle og henta ólíkum þörfum og kröfum viðskiptavina.
Launaþjónusta
Launaþjónusta Skýrr sér um allar launavinnslur fyrir fyrirtæki. Í því fellst að það skráir allar launaupplýsingar og kemur launaupplýsingum á viðkomandi aðila. Vinnslur eru rafrænar og í bestu fáganlegu launavinnslukerfum sem til eru.
Kennarar
Hjá Skýrr-skólanum starfa menntaðir kennarar sem hafa auk þess sérhæft sig í að kenna notendum á möguleika Oracle viðskiptalausna. Kennarar Skýrr skólans hafa mjög mikla reynslu af því að kenna og þróa námsefni og leiðbeiningar fyrir notendur Oracle viðskiptalausna.
Nánari upplýsingar
skyrr@skyrr.isFrekari upplýsingar, ítarefni og greinar um Viðskiptalausnir Oracle veita ráðgjafar Skýrr í síma 569 5100.
Oracle Gold Partner
Skýrr er viðurkenndur samstarfsaðili Oracle,
Oracle Gold Partner
Námskeið
Vantar þig þjónustuheimsókn eða sérsniðið námskeið?
Hafðu samband í síma eða sendu tölvupóst á kennsla@skyrr.is

