Verisign

VeriSign® er í dag leiðandi aðili í öryggislausnum fyrir Internetið, lausnum sem tryggja að hægt er að eiga örugg samskipti yfir Internetið.

Leiðin að traustum samskiptum á netinu

Í kjölfar þess að Skýrr varð umboðsaðili VeriSign® á Vestur Norðurlöndum hefur Skýrr opnað fullkomna vottunarstöð fyrir rafræn skilríki. Vottunarstöðin er staðsett í húsakynnum Skýrr og byggir á fullkomri tækni og ströngum vinnuferlum frá VeriSign®.

Allar umsóknir um rafræn skírteini fara fram rafrænt og  er umsóknarferlið fljótlegt og einfalt. Einnig er hægt að ná sambandi við starfsfólk vottunarstöðvarinnar í gegnum skiptiborð Skýrr.  

Tryggðu að tölvusamskipti þín séu örugg og traust með hjálp VeriSign® og Skýrr

 

Nánari upplýsingar

skyrr@skyrr.is

 

VeriSign® og Skýrr

Tryggðu að tölvusamskipti þín séu örugg og traust með hjálp VeriSign® og Skýrr.

Öruggt aðgengi að læstum vefsvæðum

Þessi lausn er ætluð þeim sem vilja veita skilgreindum notendum aðgang að læstum vefsvæðum eða kerfum á vefsetri sínu. Í stað aðgangs- og lykilorða fá notendur úthlutað rafrænu skilríki sem vottar á sannanlegan hátt að um réttan notanda sé að ræða.

Öruggt aðgengi að vefsvæðum er að finna víða svo sem hjá netbönkum, framleiðslufyrirtækjum og opinberum stofnunum.


Ávinningur af þessari lausn er meðal annars:

  1. Þægilegt og notendavænt viðmót inn á vef fyrirtækisins
  2. Einfaldari umsýsla við úthlutun aðgangsheimilda
  3. Einfaldari umsýsla notenda
  4. Unnt er að undirrita færslur eða gögn á skuldbindandi hátt með rafrænum hætti
  5. Einföld stjórnstöð fyrir aðgangsstjóra vefsetursins
  6. Aukið öryggi gegn tölvuinnbrotum
  7. Öll notkun er rekjanleg með sannanlegum hætti
  8. Minna áreiti á þjónustuver þar sem notandi þarf ekki að muna aðgangs- og lykilorð
  9. Einungis réttur notandi getur komist í tengingu
  10. Ekki er hægt að stela eða hlera lykilorð að vefsvæðinu
  11. Möguleiki á að afturkalla aðgang samstundis
  12. Sterkari ímynd fyrirtækisins

 

Ríkistollstjóri notar öruggt aðgengi að vefsvæði sínu til að stýra aðgangi að VEF-tollafgreiðslunni. Þannig opnar embættið möguleikann á að geta með öruggum hætti tekið rafrænt á móti tollskýrslum. Lausnin sparar Ríkistollstjóra vinnu við innslátt og móttöku tollskýrslna á pappír. VEF-tollafgreiðslan hefur einnig dregið mjög úr biðröðum hjá Ríkistollstjóra og flýtt fyrir afgreiðslu. Lausnin hefur fært Ríkistollstjóra verulegt hagræði á sama tíma og fyllsta öryggis er gætt.

Öruggur tölvupóstur gerir notendum kleift að staðfesta uppruna tölvupósts með rafrænni undirskrift. Undirskrift virkar eins og innsigli, þannig að móttakandinn verður var við ef átt hefur verið við innihald póstsins.

Einnig geta notendur látið læsa viðkvæmum tölvupósti til sín þannig að eingöngu réttur móttakandi geti opnað hann.

Allan almennan tölvupóst er hægt að hlera, bæði þegar hann fer milli staða og í kerfum sendanda og móttakanda, þar sem kerfisstjórar geta skoðað allan tölvupóst sem ekki er varinn.

Ágæt samlíking er að almennur tölvupóstur er eins og opið póstkort, þar sem póstburðarmenn geta auðveldlega séð innihald póstsins!

 

  1. Tölvupóstur er rafrænt undirritaður og þar með er uppruni tryggður með sannanlegum hætti
  2. Móttakandi getur strax séð hvort innihaldi tölvupóstsins hafi verið breytt
  3. Opnar leið til að eiga skuldbindandi samskipti gegnum tölvupóst
  4. Opnar möguleika á að eiga hnattræn samskipti með viðkvæmar trúnaðarupplýsingar
  5. Einföld leið til að dulrita viðkvæman tölvupóst þannig að aðeins réttur viðtakandi geti lesið hann
  6. Lausn sem hamlar gegn upplýsingaleka í tölvukerfum
  7. Lausn sem sannar upphaflegt innihald tölvupósts.

 

Öruggur tölvupóstur hefur verið í notkun hjá Skýrr hf. um nokkurt skeið. Lausnin er mikilvægur liður í ímynd fyrirtækisins þar sem öruggur tölvupóstur tryggir örugga miðlun upplýsinga. Ennfremur má færa rök fyrir því að tími starfsmanna hafi nýst betur, þar sem hægt er að senda boð sem krefjast undirskriftar með tölvupósti í stað bréfasíma eða boðsendingar.

Ef þú færð tölvupóst með rafrænni undirskrift þá veist þú að allt er í stakasta lagi!

Mörg fyrirtæki vilja leyfa starfsfólki sínu og/eða viðskiptavinum að tengjast staðarneti sínu. Aðilum sem er umhugað um öryggi nota til þess dulkóðaða tengingu frá notanda inn á staðarnetið. Öruggt staðarnet miðar að því að bæta þessa tengingu. Í stað þess að nota aðgangs- og lykilorð til auðkenningar, fær notandinn úthlutað sérstöku rafrænu skilríki sem hann notar í staðinn. Öruggt staðarnet tryggir með sannanlegum hætti að eingöngu réttir aðilar geti notað sýndarnet fyrirtækisins til að komast í tengingu.

Ávinningur af þessari lausn er meðal annars:

  1. Öryggi
  2. Rekjanleiki
  3. Vissa um hver er að koma inn á staðarnetið
  4. Auðveldari umsýsla við úthlutun aðgangsheimilda til notenda
  5. Starfsfólk getur hvaðan sem er komist í samband við innri kerfi fyrirtækisins
  6. Hægt er að hafa starfsfólk í vinnu hvar sem er, jafnvel í öðrum löndum.
  7. Betri nýting starfskrafta
  8. Meira öryggi gagna - gögn fara ekki á flakk - afritun tryggð

 

Öryggi skiptir Skýrr hf. miklu máli. Skýrr hf. býður starfsfólki sínu öruggt aðgengi að innraneti sínu að heiman eða á ferðalögum. Þar eru geymd viðkvæm gögn sem ekki mega komast í hendur óviðkomandi aðila.

Hefðbundin högun með notandanafni og lykilorði er ekki nægjanlega örugg og því var ekki opnað fyrir aðgang starfsmanna Skýrr utanfrá fyrr en lausn frá VeriSign hafði verið innleidd.

Þetta hefur fært Skýrr hf. mikla hagræðingu, bæði nýtist starfsfólk betur og að auki hefur þetta opnað leið fyrir fyrirtækið til að taka inn verktaka erlendis frá. Öruggt aðgengi að staðarneti Skýrr hf hefur einnig fært starfsfólki meiri möguleika á sveigjanlegum vinnutíma sem og að það getur nálgast gögn sín hvenær sem er.

Traust vottun vefsetra

Ein helsta hindrun viðskipta á vef er traust, það er að viðskiptavinurinn er ekki sannfærður um að þær upplýsingar sem hann sendir séu að ekki hleraðar eða komist í rangar hendur.

VeriSign vottun á vefsvæði miðar að því að eyða þessari hindrun og skapa gagnkvæmt traust. Vottun vefsvæða er útbreiddasta lausn VeriSign og er notuð af öllum helstu fyrirtækjum sem bjóða þjónustu á vefnum bæði hér heima og erlendis. Má þar nefna alla íslensku bankana, helstu vefverslanir og opinber fyrirtæki. Hægt er að skoða lausnina með því að fara inn á https://www.skyrr.is og smella á lásinn neðst í hægra horninu.

Ávinningur af þessari lausn er meðal annars:

  1. Sannanleg vottun um að þú sért staddur á réttum stað (auðvelt er að falsa vefi og þykjast vera annað fyrirtæki en notandinn heldur)
  2. Örugg SSL tenging sem tryggir að öll samskipti séu dulrituð og ólesanleg af utanaðkomandi aðilum
  3. Aukið traust notenda á að nota vefsetrið
  4. Traust ímynd

Vantraust hefur haldið aftur af auknum viðskiptum á Netinu, enda fer tölvuglæpum sífellt fjölgandi. Af þeim sökum er markaðurinn fyrir þessa vöru mjög virkur og vaxandi, enda vilja traust fyrirtæki ekki láta óprúttna aðila skemma fyrir sér þá hagræðingu sem þau geta notið með því að nýta sér möguleika Netsins.

Flugleiðir hafa sem dæmi sett upp bókunarkerfi á vefnum. Þar geta viðskiptavinir afgreitt sig algjörlega sjálfir, allt frá því að finna flug og bóka yfir í að greiða fyrir þjónustuna á vefsetrinu. Hlutur vefsölu fer sífellt vaxandi í veltu Flugleiða og er farinn að skipta verulegu máli fyrir rekstur félagsins. VeriSign vottun er sá þáttur sem gerir vefsölu mögulega, en án hennar myndu notendur vantreysta lausninni og þar af leiðandi ekki nota kerfið. Það sama má segja um netbankana.

Eftirfarandi er verðlisti þeirrar þjónustu sem í boði er:

Vara Verð
Rafræn skilríki 25 USD
Vottað rafrænt skilríki 80 USD

Vottun á vefsvæði með 40 bita dulkóðun

Vottun á vefsvæði með 40 bita dulkóðun

399 USD  hvert ár

695 USD tvö ár

Vottun á vefsvæði með 128 bita dulkóðun 995 USD hvert ár
Tveggja ára vottun á vefsvæði með 128 bita dulkóðun 1.790 USD  tvö ár
Öruggt vefsvæði OnSite® lite Tilboð miðað við þarfir -
Fyrirtækjalausnir - OnSite® GoSecure!sm Tilboð miðað við þarfir -
Fyrirtækjalausnir - IPSec Tilboð miðað við þarfir -
Fyrirtækjalausnir - Trusted VPN Tilboð miðað við þarfir -
Ráðgjöf - Þarfagreining Fast tilboð skv. beiðni -

Þarfir einstaklinga, fyrirtækja og stofnana eru misjafnar.  Við hjá Skýrr bjóðum ráðgjöf og þarfagreinginu í tengslum við rafræn skilríki. Skýrr leggur áherslu á að vinna með stjórnendum í hverju tilviki fyrir sig,  við val á lausn. 

Skýrr hefur sérfræðiþekkingu á þessu sviði og með samningi okkar við Verisign® teljum við okkur geta boðið bestu fáanlegu ráðgjöf og dregið fram kosti og galla mismunandi aðferða. Ef þú hefur áhuga á að að vita meira skaltu hafa samband við okkur í síma 569 5100 eða vottun@skyrr.is