Gagnavistun
Vistun gagna
Hefðbundnar lausnir á rekstri tölvupóstkerfa felast gjarnan í því að bæta við diskaplássi, eyða gögnum og setja stærðartakmörk á pósthólf. Þetta eru skammtímalausnir, sem ráðast ekki að rót vandans. Með Gagnavistun Skýrr heyra slíkar aðgerðir fortíðinni til -þú minnkar álagið og eykur öryggi og skilvirkni um leið.Heildstæð nálgun
Gagnavistun er ekki bara skápur fullur af diskum sem tengist svo miðlarasvæði. Gagnavistun er auðlind sem ber að stýra til að ná hámarksnýtingu. Vel rekin upplýsingatæknistefna fyrirtækja er stefna sem tekur tillit til auðlindarinnar, úthlutun hennar, viðhaldi og viðbótum samkvæmt heilstæðri stefnumörkun. Gagnavistun Skýrr er heildstæð nálgun á hvernig má hámarka vistun gagna m.t.t. öryggis, afkasta og ekki síst lækkun kostnaðar.
Nánari upplýsingar
skyrr@skyrr.isViltu tilboð?
Hafðu samband við Skýrr í 569 5100 eða gagnavistun@skyrr.is til að fá nánari upplýsingar og verðtilboð.

Gagnavistun Skýrr
- minnkar afritunartíma um 80%
- minnkar gagnamagn í póstkerfum um 40%
- stóreykur hraða og virkni póstkerfa
- kemur í veg fyrir að skrá sé vistuð oft og á mörgum stöðum
- tryggir endanlegt form tölvupósts til lengri tíma
- færir þér upplýsingar hratt og örugglega
- sér um sjálfvirka flokkun og vistun tölvupósts
- forðar þér frá langvarandi rekstrartöfum vegna kerfishruns
Gagnavistun Skýrr Power Point

